Hæhæhæhæhæhæhæ.....
Hvað syngur í ykkur elskurnar mínar?! Stuð að sjá hversu margir
koma alltaf inn á þessa síðu, samt aðeins minna stuð að sjá hversu
fáir kvitta fyrir sig. Veriði dúleg að skilja spor eftir ykkur
krúsídúllur 
Ég (Tinna) og Kristó (Kristó) erum að spjalla saman á omega í
kvöld (Fimmtudagskvöld 27. apríl ) um átta leitið. Ef þið
hafið áhuga á því að fá blessun frá guði með því að hlusta á hvað
hann hefur blessað okkur mikið þá skora ég á ykkur að fá ykkur popp
og vatn ( besta sjónvarps blandan ), planta ykkur í sófann og
njóta.
Það eru líka heimahópar í gange á sama tíma. Stelpuhópur klukkan
8 upp í kirkju.. ALLAR kvensur velkomnar á aldrinum 12 -......30
eða eitthvað. Svo er strákahópur, karlfuskar (er það ljótt
orð?) á aldrinum 16-.....30 eða eitthvað eru velkomnir klukkan
8 upp í kirkju, held ég, hringið í Ívar til að vera viss -
866-4914. Youth with a mission koma í heimsókn í báða hópa að
predika þannig að þetta verður kúl stöff.
Á föstudaginn er mögnuð samkoma uppí kirkju. Það kemur öflugur
maður frá USA að predika og ég trúi því að góðir hlutir eiga eftir
að gerast í góðum hjörtum.
Hey... veriði glöð! 
Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð
korns og vínlagar. Sálmarnir 4:8
Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.
Sálmarnir 126:5
Eftirvænting réttlátra endar í gleði, en von óguðlegra verður að
engu. Orðskviðirnir 10:28
Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en
illgjörðamönnum er það skelfing.Orðskviðirnir
21:15
Guð vill að við séum glöð, allt sem að segir að við eigum ekki
að gera og það sem hann segir að við eigum að gera er EINA
uppskriftin af sannri gleði.
Hann er aðal bakarinn sem á bestu uppskriftirnar. Hann bjó ekki
til þessar uppskriftir til að vera strangur og láta okkur líða illa
eða eins og við séum alltaf að fylgja einhverjum leiðinlegum
reglum, hann bjó þær til svo að við getum átt FRÁBÆRT líf!!!

Tinna Kveður með þessu:
Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.
Filipíbréfið 4:4